|
föstudagur, 19 mars 2010 14:14 |
|
Nemendur í 5. bekk hafa undanfarna viku gengið í hús og safnað peningum fyrir abc barnahjálp. Verið er að safna fyrir skólahúsi handa götubörnum á Indlandi. Byrjað var á innlögn um aðstæður götubarna og hvaða möguleika við getum gefið þeim með þessari söfnun. Nemendur voru mjög áhugasamir og vildu leggja sitt af mörkum. Íbúar hverfisins hafa tekið nemendum einstaklega vel og hafa söfnunarbaukarnir komið hver af öðrum sneisafullir í skólann. Við viljum þakka nemendum fyrir eljusemi og dugnað og hverfisbúum fyrir frábærar móttökur.
|
|
fimmtudagur, 18 mars 2010 15:38 |
|
Í febrúar fór hópur sem er í náttúrufræði í 5.bekk í heimsókn í Rafheima. Stefán Pálsson tók á móti okkur og byrjaði á skemmtilegri fræðslu um rafmagn þar sem hann fékk nokkra sjálfboðaliða til að aðstoða sig. Því næst fengu nemendur að spreyta sig á nokkrum tilraunum og svo að lokum að skoða sig um á þessu spennandi og skemmtilega safni. Nemendur voru mjög áhugasamir og skólanum til sóma á allan hátt.
|
|
þriðjudagur, 16 mars 2010 10:38 |
|
Stóra upplestarkeppnin er fastur liður í skólastarfi Ölduselssóla. Hún hefst ár hvert á degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember, og henni lýkur í mars. Markmið upplestrarkeppninnar er að vekja athygli og áhuga nemenda á vönduðum upplestri og framburði. Keppnin er nú haldin í 13. sinn.
Miðvikudaginn 10. mars kepptu níu nemendur í 7. bekk um það hverjir yrðu fulltrúar skólans á lokahátíð keppninnar 17. mars í Fella- og Hólakirkju. Þar etja saman kappi nemendur úr grunnskólum Breiðholts. Er óhætt að segja að keppnin hafi verið jöfn og spennandi og voru dómarar ekki öfundsverðir af hlutskipti sínu.
Að þessu sinni urðu Helga Sæunn Þorkelsdóttir, 7. HJ og Sif Björgvinsdóttir 7. AÖ, hlutskarpastar og Sölvi Steinn Jónsson, 7.AÖ var valinn varamaður. Óskum við þeim innilega til hamingju
|
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 5 af 13 |