Fimmtudaginn 25.febrúar fór fram keppni í okkar riðli í Skólahreysti. Keppnin fór fram í íþróttahúsinu Austurbergi og voru skólar úr Árbæ, Breiðholti, Grafarvogi, Grafarholti og Norðlingaholti sem kepptu. Keppnin fór þannig að við unnum riðilinn og komumst því í úrslitakeppnina sme fer fram 29.apríl 2010.
Okkar lið skipa: Sara Glóð Jónsdóttir og Gísli Haraldsson keppa í hraðabraut, Jóna Valdís Benjamínsdóttir keppir í armbeygjum og hreystigreip og Garðar Guðmundsson keppir í upphífingum og dýfum.
Skólavinir
þriðjudagur, 23 febrúar 2010 15:26
Eins og undanfarin ár hafa nemendur í 7. bekk tekið þátt í verkefni sem stuðlar að betri samskiptum á skólalóðinni í frímínútum. Þetta verkefni köllum við skólavinaverkefni og þeir sem taka þátt eru skólavinir eina viku í senn. Þeir ganga um lóð skólans og leika og spjalla við yngri nemendur, aðallega nemendur í fyrsta og öðrum bekk. Þetta hefur mælst mjög vel fyrir og yngri krakkarnir eru farnir að stóla á skólavinina æ meira. Sjálfboðaliðar úr 7. bekk hafa nú allir unnið eina viku og umferð tvö hjá sumum þeirra er þegar hafin. Síðasta föstudag fengu þessir sjálfboðaliðar smá umbun fyrir vel unnin verk, sem að þessu sinni var ís. Við viljum þakka þeim kærlega fyrir aðstoðina og vonumst til að þeir haldi áfram að vera sannkallaðir skólavinir og gera skólann okkar að enn betri skóla.