Tilkynningar




Influensa.is

Viðbragðsáætlun skólans
__________________

Námstækni 

 

 


 
 

Gestagangur

 59 gestir Í heimsókn
Stjörnufræði 9. bekkur Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
miðvikudagur, 03 febrúar 2010 14:20


Við upphaf Stjörnufræðinnar í 9.bekk fengum við Snævarr Guðmundsson stjarnvísindamann í heimsókn með heilt Stjörnuver í farteskinu, (sjá nánar natturumyndir.com). Stjörnuverið er einskonar sýndarveruleiki þar sem ferðast er um geiminn og um leið eru undur og óravíddir alheimsins gerð raunveruleg með hjálp forrits og fyrirlesturs. Nemendur upplifðu t.d. hljóð frá Sólinni og tunglinu Títan og fengu að líta á Jörðina sem og aðrar reikistjörnur frá öðrum sjónahornum en gengur og gerist. Lífsskilyrði og lífsform voru nemendum hugleikin og vakti heimsóknin mikinn áhuga á stjörnufræði sem og almennum geimvísindum.

Jens Karl

  
 
Hringekja 5. - 6. bekkur Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
mánudagur, 01 febrúar 2010 15:13
Í hringekju eru nemendur að fást við og fræðast um fjölbreytileg viðfangsefni. Þar á meðal er raffræði þar sem nemendur fræðast um framleiðsluferli sem og nýtingu rafmagns auk einfaldra tenginga/íhluta. Nemendur voru ekki lengi að tileinka sér tengimöguleika einfaldra rafrása og voru farin að hliðtengja mótora við rofa, viftur og ljósaperur áður en tíminn var liðinn. Það er alltaf skemmtilegt þegar kviknar á perunni.

Jens Karl

 
Heimsókn í Seljaborg Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
föstudagur, 29 janúar 2010 14:29
Föstudaginn 15. janúar fóru 3 nemendur ásamt kennara skákvals unglingadeildar í heimsókn í leikskólann Seljaborg. Róbert Lagerman umsjónarmaður leikskólastarfs Skákakademíu Reykjavíkur slóst í för með hópnum. Mikill skákáhugi er í Seljaborg og þá sérstaklega meðal 5 ára drengja. Heimsóknin tókst mjög vel og komu drengirnir á óvart með mikilli kunnáttu í skák miðað við aldur þeirra. Kennarar skólans voru ánægðir með heimsóknina og mun verða áframhald á skákkennslu í Seljaborg. Þessir drengir munu hefja nám við Ölduselsskóla næsta haust og stefnir Skákakademían að skákkennslu í 1. bekk. næsta vetur. Í lok heimsóknarinnar færði Stefán Bergsson skólanum 5 eintök af skákbókinni Skák og Mát sem ætluð er byrjendum. Hrósa ber þeim Kristófer Aryan Montazeri, Fanneyju Hrund Jónasdóttur og Ragnari Ingva Kristinssyni nemendum skákvals fyrir góða frammistöðu í heimsókninni.
Stefán Bergsson
 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 7 af 13

Máltíð dagsins

05.09.2010

Helgarfrí

Sjá matseðil mánaðarins
<<  September 2010  >>
 m  þ  mi  fi  f  la  su 
    1  2  3  4  5
  6  7  8  9101112
13141516171819
2526
27282930   

Næstu atburðir