|
mánudagur, 14 desember 2009 14:03 |
|
Fyrir nokkrum vikum kom út ný unglingabók eftir Þorgrím Þráinsson sem heitir NÚLL NÚLL 9. Um er að ræða sjálfsstætt framhald bókanna Svalasta 7an og Undir 4 augu sem nutu mikilla vinsælda. Þetta er spennusaga, í anda James Bond þar sem unglingar flækjast inn í æsandi atburðarás. Fimmtudaginn 10. desember kom Þorgrímur og las upp úr bókinni fyrir nemendur í 8.-10. bekk. Hlustuðu nemendur af athygli og komu með góðar spurningar að upplestri loknum. Hægt er að kynna sér efni bókarinnar á andi.is.
|
|
Eðlisvísindi í Ölduselsskóla |
|
|
|
|
föstudagur, 11 desember 2009 10:47 |
|
Þessa vikuna eru nemendur 9.bekkja að vinna raunathuganir á vettvangi með hugtakið ferð. Nánari skilgreining þess er hraði hlutar í ákveðna stefnu. Nemendur mældu vegalengd (S) í metrum á milli tveggja ljósastaura(fastra punkta) á völdum stöðum í Skógarseli. Síðan tímamældu(t í sekúndum) þeir hversu lengi bílar fóru á milli punkta. Eftir að hafa tekið fimm mælingar fóru nemendur tilbaka í skólann þar sem var unnið úr niðurstöðunum og hraði bílanna(v) m/s, fundinn útfrá formúlunni S=v*t. Niðurstöður nemenda leiddu í ljós að ökutækin voru oft töluvert frá hámarkshraða í Skógarselinu þ.e. í kringum 60km/h til 65km/h. Skilningur nemenda á forsendum hraðamælinga er annar heldur en fyrir verkefnið.
Jens Karl
|
|
fimmtudagur, 10 desember 2009 11:38 |
|
Skáksveit Ölduselsskóla tók þátt í Jólaskákmóti ÍTR sem haldið var í Skákhöllinni að Faxafeni 12 mánudaginn 7. desember. Liðið skipuðu þeir Hafþór Hrafnsson, Þormar Orri Þrastarson, Björn Leví Óskarson og Ragnar Yngvi Kristinsson. Þessir fjórir drengir eru meðal bestu skáknemenda í skákvali í unglingadeild sem um 20 nemendur sækja.
Á mótinu voru 14 sveitir og því þátttakendur alls um 60. Tefldar voru sex umferðir og því 24 vinningar í boði. Sveit skólans hlaut 12 vinninga eða helmings vinningshlutfall. Það er hinn ágætasti árangur, sér í lagi ef litið er til þess að í þessum sex umferðum tefldu drengirnir við liðsmenn fjögurra efstu sveitanna! Ragnar stóð sig best liðsmanna Ölduselsskóla; fékk fjóra vinninga og tapaði einungis 2 skákum. Ragnar hefur tekið miklum framförum í skákinni að undanförnu og hefur næmt auga fyrir skákfléttum.
Næsta verkefni drengjanna er Jólapakkamót Hellis sem fer fram í Ráðhúsinu laugardaginn 19. desember.
|
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 9 af 13 |