|
Íslenskuverðlaun Menntaráðs Reykjavíkur |
|
|
|
|
þriðjudagur, 17 nóvember 2009 10:26 |
|
Íslenskuverðlaunum Menntaráðs Reykjavíkur er úthlutað árlega á Degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember. Markmið þeirra er að auka áhuga æskufólks á íslenskri tungu og hvetja það til framfara í tjáningu talaðs máls og ritaðs. Verndari verðlaunanna er frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi foresti Íslands. Sérhver grunnskóli í Reykjavík getur tilnefnt þrjá nemendur, nemendahóp eða verkefni til verðlaunanna, einn af hverju aldursstigi. Verðlaunin eru veitt nemendum sem hafa til dæmis sýnt færni og frumleika að sköpunargleði við að tjá sig á íslensku í ræðu og riti, hafa sýnt leikni í að nota tungumálið sem samskiptatæki eða hafa tekið miklum framförum í íslensku.
Að þessu sinni tilnefndi Ölduselsskóli þrjár stúlkur til verðlaunanna og tóku þær á móti verðlaunagripnum við hátíðlega afthöfn í Ráðhúsi Reykjavíkur mánudaginn 16. nóvember. Við óskum þeim innilega til hamingju. Verðlaunahafarnir eru:
Linda Líf Boama, 3.HK, Elena Brynjarsdóttir, 6.ÞÓ og Sóley Benediktsdóttir, 9.SH
_________________________________________________________________
|
|
mánudagur, 23 nóvember 2009 13:00 |
|
Dagur íslenskrar tungu hefur verið haldinn hátíðlegur síðan 1996. Dagurinn er tileinkaður þjóðskáldinu Jónasi Hallgrímssyni en 16. nóvember er fæðingardagur hans. Það hefur verið til siðs að halda upp á daginn með ýmsu móti í skólum landsins. Að þessu sinni sáu nemendur í 9. bekk í Ölduselsskóla um dagskrá á sal skólans fyrir kennara og nemendur unglingadeilda. Um nokkurt skeið höfðu nemendur kynnt sér hvernig íslensk skáld hafa ort um ástina í víðri merkingu þess orðs allt frá Jónasi fram á okkar daga. Kveðskapur um ástina var því viðfangsefni dagskrárinnar.
Hátíðin heppnaðist vel en nemendur lásu ljóð höfunda frá ýmsum tímum auk frumsaminna ljóða. Nemendur sungu einnig ástarljóð við gítarleik tónmenntakennara skólans og tveggja nemenda, lásu spakmæli um ástina og sýndu dans.
Dagskránni lauk með fjöldasöng sem allir tóku vel undir. Nemendur stóðu sig mjög vel og það er greinilegt að innan hópsins er margt hæfileikaríkt ungt fólk.
|
|
föstudagur, 20 nóvember 2009 14:19 |
|
Á dögunum kom Eyjólfur Jónsson sálfræðingur í heimsókn og ræddi við nemendur unglingadeilda um tölvur, netið, tölvufíkn og þær aðrar hættur sem geta steðjað að ungmennum dagsins í dag. Sitthvað sem hann ræddi bendir eindregið til þess að of stór hópur er fullmikið bundinn við tölvuna og það sem meira er að foreldrar virðast oft á tíðum vita heldur lítið um hvað börnin þeirra eru að bauka.
Fróðlegur fyrirlestur og þörf ábending.
_________________________________________________________________
|
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 10 af 13 |