|
mánudagur, 31 maí 2010 15:12 |
|
Nemendur í 7. bekk hafa nú á vormánuðum verið að fræðast um þann skelfilega atburð Íslandssögunnar sem gerðist árið 1627 þegar flokkar sjóræningja réðust á landið okkar og námu á brott um 400 Íslendinga sem síðar voru seldir á þrælatorgi í Algeirsborg í Afríku. Þó svo að þetta námsefni hafi verið kennt áður í 7. bekk nálguðumst við viðfangsefnið á nokkurna annan hátt en áður. Nemendur unnu fjölbreytt verkefni tengd efninu en settu síðan upp leikrit þar sem þeir útbjuggu handritið og alla umgjörðina að mestu sjálf. Þar sem engin kennslubók er til um þetta efni dreif Auður kennari ásamt Ívari Sigurbergssyni manni sínum í því að útbúa allt kennsluefnið í formi vefsíðu en þar er allt námsefnið sett fram á mjög svo áhugaverðan hátt. Þetta er því í fyrsta sinn í Ölduselsskóla sem nemendur hafa svo til allt námsefnið í rafrænu formi en fyrir áhugasama er hægt að nálgast námefnið á arifrodi.is/Tyrkir. Leikritið var sýnt tvisvar sinnum fyrir fullum sal áhorfenda þann 18. maí, fyrst fyrir nemendur í 5. og 6. bekk en síðan fyrir fjölskyldur nemenda. Þar sem mikill sigur hafði unnist eftir mikla vinnu var fagnað á eftir með ferð á Pizza Hut í Smáralindinni þar sem mannskapurinn borðaði á sig gat.
 |
|
fimmtudagur, 27 maí 2010 10:39 |
|
Fimmtudaginn 20. maí héldum við í 6. bekk BINGÓ fyrir vini og vandamenn. Bingóið hófst kl. 18:00 þar sem við snæddum SS pylsur eins og Íslendingum einum er lagið. Hress og kát skelltum við okkur svo í BINGÓIÐ þar sem við spiluðum 14 umferðir með ýmsu móti. Að sjálfsögðu sáu nemendur um að stjórna þessu með glæsibrag. Vinningarnir voru ekki af verri endanum, þar sem foreldrar lögðu sig alla fram. Vinningarnir vor meðal annars gjafabréf á Wilsons, Subway, gjafakort í Nettó, harðfiskur, skógrindur, sportpakki, snakk og gos, handklæði, bókapakkar og síðast en ekki síst helgardvöl að Minni Borgum. Þetta tókst mjög vel og vorum við öll afskaplega ánægð með frábæra mætingu og brosum við hringinn þar sem við náðum að safna fyrir ferð alla leið í Borgarfjörðinn á æskuslóðir Snorra Sturlusonar.
Gleðilegt sumar 6. bekkur
|
|
,,Taka 2010“ kvikmyndahátíð grunnskólanna |
|
|
|
|
miðvikudagur, 26 maí 2010 14:03 |
|
„Taka 2010“ kvikmyndahátíð grunnskólanna í Reykjavík fór fram 20. maí síðastliðinn í Sambíóum í Kringlunni. Nemendur sendu að þessu sinni inn sextíu myndir og voru þær þrjár bestu í flokki heimildarmynda, stuttmynda og hreyfimynda verðlaunaðar. Keppt var í tveimur aldursflokkum og fengu sigurvegarar í hverjum flokki áritað klapptré. Fjórar stúlkur; Auður, Bergrós Fríða, Khadija Ósk og Sóley Sif úr 7. bekk í Ölduselsskóla hrepptu 1. verðlaun fyrir hreyfimynd sína „Hafmeyjan“.
Myndmenntakennararnir Bergljót og Dagbjört fengu einnig viðurkenningu fyrir frumkvöðlastarf í hreyfimyndagerð í Ölduselsskóla.
|
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 2 af 13 |