| Ölduselsskóli |
|
|
|
Ölduselsskóli tók til starfa haustið 1975. Nemendur voru þá tæplega 100 og kennarar 4 auk tveggja stundakennara og skólastjóra. Að vori fyrsta skólaárs voru nemendur 104, tveimur árum síðar 590, 799 árið 1980 en hámarki var náð skólaárið l982-1983 en þá voru nemendur 936. Eftir það fór að fækka, niður í 602 árið 1990 og 532 árið 1993. Undanfarin þrjú ár hafa nemendur verið um 520 og er nú heldur að fjölga aftur í yngstu bekkjardeildunum. Starfsmenn skólans eru 69 þar af 43 kennarar að skólastjórnendum meðtöldum.
![]() Þegar skólinn tók til starfa var engin skólabygging risin og fór starfið fram í lausum kennslustofum á skólalóð. Haustið 1977 var flutt í fyrsta áfanga skólabyggingar, 16 stofur ásamt miðrými.Haustið 1980 var allur annar áfangi Ölduselsskóla tekinn í notkun. Sameiginlegt íþróttahús með Seljaskóla sama ár og loks, haustið 1988, útisundlaug við skólann ásamt fylgihúsnæði. Fyrir tveimur árum fékk svo skólinn skóladagheimilið Seljakot til ráðstöfunar og afnot af íþróttahúsi ÍR við Skógarsel. Enn vantaði þó nokkuð á. Húsnæði Ölduselsskóla var í upphafi áætlað miklu stærra en síðar varð raunin. Verk- og listgreinakennsla hefur því til þessa búið við þrengsli og slæman aðbúnað. Viðbygging, til að bæta úr þessu, er nú komin vel á veg og verður tilbúin til notkunar haustið 1996. Haustið 1992 urðu þau tímamót í sögu Ölduselsskóla að boðið var upp á lengda viðveru yngri barna skólans, svokallaðan heilsdagsskóla.Nemendum 1. - 4. bekkjar var gefinn kostur á að dvelja í skólanum eftir að kennslu lauk gegn ákveðnu gjaldi.Fyrstu tvö árin var heilsdagsskólinn að mestu til húsa í Félagsmiðstöðinni Hólmaseli. Haustið 1994 þegar skólinn fékk Seljakot til umráða var starfsemin flutt þangað en auk Seljakots er ein stofa í skólanum notuð undir þessa starfsemi .Þegar nýja viðbyggingin verður tekin í notkun næsta haust mun heilsdagsskólinn flytja þangað enda missir skólinn þá yfirráð yfir Seljakoti.Fyrsta árið notuðu rúmlega 40 börn þjónustu heilsdagsskólans en 60 - 70 þetta skólaár.Starfsmannafjöldi er 1 fyrir hver 10 - 12 börn.Þess utan er nemendum á miðstigi gefinn kostur á heimanámsaðstoð daglega eftir að kennslu lýkur, einnig gegn ákveðnu gjaldi. Lengst af var Ölduselsskóli tvísetinn, og jafnvel þrísetinn á tímabili áður en annar áfangi byggingar var tekinn í notkun, en skólaárið 1994-95 fengu allir nemendur að hefja nám árdegis og yngri nemendur áttu síðan kost á lengri dvöl við leik og störf. Samt sem áður er ekki hægt að segja að skólinn sé einsetinn, til þess þarf hver bekkur að hafa sína eigin stofu en því er ekki enn til að dreifa með elstu bekkina. Innra starf skólans þessi 20 ár hefur verið í stöðugri þróun og endurnýjun. Með tilkomu annars áfanga fékk skólinn gott bókasafn sem síðan hefur gegnt veigamiklu hlutverki í skólastarfinu. Ölduselsskóli var fyrstur grunnskóla Reykjavíkur til að koma upp nettengdri tölvustofu. Sérkennsla hefur alltaf skipað veglegan sess í skólanum og í því sambandi var Dagdeild komið á fót haustið 1991 og þjónar hún Seljaskóla og Breiðholtsskóla auk Ölduselsskóla. Ýmsir kennarar skólans hafa hlotið styrki til þróunarstarfa, svo sem til að móta nýjar aðferðir í íslenskukennslu, heimilisfræði, líffræði og umhverisfræðslu, vinna að heildarskipulagningu á náttúrufræðikennslu og námsefnisgerð í mörgum greinum, enda hefur skólinn á að skipa atorkusömu og hæfileikaríku fólki. Þá má nefna að félagsstarf nemenda hefur alla tíð verið órjúfanlegur þáttur skólastarfsins og er leitast við að tvinna það saman við skólastarfið. |


