Prenta Senda tengil

 

 
 
 
 Olweusaráætlunin gegn einelti í Ölduselsskóla
 
Olweusaráætlunin gegn einelti er samstarfsverkefni Menntamála-ráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Kennarasambands Íslands og Heimilis og skóla. Áætlunin byggir á kenningum prófessors Dan Olweus sem rannsakað hefur einelti sl. 35 ár og er einna fremstur fræðimanna í heiminum á því sviði. Þegar verkefninu var hrundið af stað á Íslandi haustið 2003 náði það til 43 grunnskóla og skólaskrifstofa en í dag eru um 80 grunnskólar af landinu öllu þátttakendur í verkefninu.
 
Ölduselsskóli er einn þeirra grunnskóla sem tekið hafa þátt í verkefninu frá upphafi. Eineltisteymi skólans stýrir starfinu en í því sitja skólaárið 2009-2010:
 
Elínrós Benediktsdóttir kennari
Eygló Guðmundsdóttir kennari
Kristín Gísladóttir kennari
Petra Eiríksdóttir kennari
Þórunn Ólafsdóttir kennari
 
Á yfirstandandi skólaári sinnir Kristín einnig svokölluðu oddvitahlutverki áætlunarinnar þ.e. að bera „aðalábyrgð á skipulagningu og starfsemi í tengslum við áætlunina innan skólans.“
 
HELSTU MARKMIÐ OLWEUSARÁÆTLUNARINNAR eru að draga úr tækifærum til eineltis og skapa þannig andrúmsloft að einelti borgi sig ekki. Áætlunin byggist á fremur fáum meginreglum og miðar að því að endurbæta félagslegt umhverfi í skólanum og að skapa skólaumhverfi (og helst líka umhverfi heima fyrir) sem einkennist af:
 
 
  • jákvæðum áhuga og alúð hinna fullorðnu
  • ákveðnum vinnurömmum vegna óviðunandi atferlis
  • stefnufastri beitingu neikvæðra afleiðinga (viðurlaga) sem hvorki eru líkamlegar né óvinveittar, brjóti nemandi gegn þeim reglum sem ákveðnar hafa verið
  • ákveðni og myndugleika hinna fullorðnu sem virka sem yfirboðarar við vissar aðstæður.
 
Til að vinna að því að þessar meginreglur verði teknar í notkun innan skólans fara af stað ýmsar aðgerðir í skólanum, á heimilum og gagnvart einstaklingum. Helstu markmið aðgerðaáætlunarinnar eru að draga úr tækifærum til eineltis og skapa þannig andrúmsloft að einelti borgi sig ekki.
 
Í áætluninni fá nemendur fá fræðslu um einelti, birtingarform þess og afleiðingar fyrir gerendur og þolendur, lögð er áhersla á bætt eftirlit innan skólans og vitundarvakningu meðal starfsfólks, nemenda og foreldra. Bekkjarreglur gegn einelti gilda í hverjum bekk, haldnir eru bekkjarfundir um samskipti og skólabrag og tekið verður á þeim eineltismálum sem upp koma með skipulögðum hætti með samtölum við gerendur, þolendur og foreldra.
 
Sjá nánar á http://www.olweus.is/
 
 
 

Máltíð dagsins

05.09.2010

Helgarfrí

Sjá matseðil mánaðarins
<<  September 2010  >>
 m  þ  mi  fi  f  la  su 
    1  2  3  4  5
  6  7  8  9101112
13141516171819
2526
27282930