| Ökunám og vélfræði |
|
|
|
| þriðjudagur, 25 maí 2010 12:00 |
|
Nemendur í Ökunámi og vélfræði brugðu undir sig betri fætinum að loknu vorprófi. Ákveðið var skoða uppgerð á Ford Bronco árg. ´74 í hverfinu. Nemendur fengu að fylgjast með og skoða hvernig slithlutir sem og öryggisbúnaður er endurnýjaður á faglegan og um leið öruggan hátt. Nemendur voru hrifnir af því að fá að skyggnast inní hvernig mismunandi kerfi/búnaður bíla líta út. Merkilegast þótti hversu lítið grunneiningar/kerfi fólksbílsins hafa breyst á umliðnum áratugum. JKÍ
|




