| Bingó í 6. bekk |
|
|
|
| fimmtudagur, 27 maí 2010 10:39 |
|
Fimmtudaginn 20. maí héldum við í 6. bekk BINGÓ fyrir vini og vandamenn. Bingóið hófst kl. 18:00 þar sem við snæddum SS pylsur eins og Íslendingum einum er lagið. Hress og kát skelltum við okkur svo í BINGÓIÐ þar sem við spiluðum 14 umferðir með ýmsu móti. Að sjálfsögðu sáu nemendur um að stjórna þessu með glæsibrag. Vinningarnir voru ekki af verri endanum, þar sem foreldrar lögðu sig alla fram. Vinningarnir vor meðal annars gjafabréf á Wilsons, Subway, gjafakort í Nettó, harðfiskur, skógrindur, sportpakki, snakk og gos, handklæði, bókapakkar og síðast en ekki síst helgardvöl að Minni Borgum. Þetta tókst mjög vel og vorum við öll afskaplega ánægð með frábæra mætingu og brosum við hringinn þar sem við náðum að safna fyrir ferð alla leið í Borgarfjörðinn á æskuslóðir Snorra Sturlusonar. ![]() Gleðilegt sumar 6. bekkur |




