|
mánudagur, 31 maí 2010 15:12 |
|
Nemendur í 7. bekk hafa nú á vormánuðum verið að fræðast um þann skelfilega atburð Íslandssögunnar sem gerðist árið 1627 þegar flokkar sjóræningja réðust á landið okkar og námu á brott um 400 Íslendinga sem síðar voru seldir á þrælatorgi í Algeirsborg í Afríku. Þó svo að þetta námsefni hafi verið kennt áður í 7. bekk nálguðumst við viðfangsefnið á nokkurna annan hátt en áður. Nemendur unnu fjölbreytt verkefni tengd efninu en settu síðan upp leikrit þar sem þeir útbjuggu handritið og alla umgjörðina að mestu sjálf. Þar sem engin kennslubók er til um þetta efni dreif Auður kennari ásamt Ívari Sigurbergssyni manni sínum í því að útbúa allt kennsluefnið í formi vefsíðu en þar er allt námsefnið sett fram á mjög svo áhugaverðan hátt. Þetta er því í fyrsta sinn í Ölduselsskóla sem nemendur hafa svo til allt námsefnið í rafrænu formi en fyrir áhugasama er hægt að nálgast námefnið á arifrodi.is/Tyrkir. Leikritið var sýnt tvisvar sinnum fyrir fullum sal áhorfenda þann 18. maí, fyrst fyrir nemendur í 5. og 6. bekk en síðan fyrir fjölskyldur nemenda. Þar sem mikill sigur hafði unnist eftir mikla vinnu var fagnað á eftir með ferð á Pizza Hut í Smáralindinni þar sem mannskapurinn borðaði á sig gat.

|