Mötuneyti Prenta Senda tengil
Mötuneyti var tekið í notkun 1. september 2008. Mötuneytið tekur 216 gesti í sæti.

Umsjónarmaður mötuneytis er matreiðslumaðurinn G. Gunnar Björnsson og með honum starfar einn matartæknir og síðan eru 1- 6 skólaliðar að störfum eftir álagi. Matinn þarf að reiða fram í þremur hollum.
  • Klukkan 11.30 borða nemendur 1., 5., og 6. bekkja.
  • Klukkan 12.10 borða nemendur 2.,3.,4, og 7. bekkja
  • Klukkan 12.40 borða nemendur 8., 9., og 10. bekkja
Nemendur þurfa að skrá sig í áskrift matar. Innheimta er mánaðarleg og er greitt fyrirfram fyrir áskriftina. Litið er svo á að nemendur séu í mat þar til þeir afskrá sig.

Borgarráð Reykjavíkur hefur ákveðið að samræma gjald fyrir skólamáltíðir í grunnskólum borgarinnar frá 1. febrúar 2009 Gjaldið verður 5.000,- á mánuði fyrir hvert barn og ekki þarf að greiða fyrir fleiri en tvö börn af sama heimili. Jafnframt hefur Reykjavíkurborg ákveðið að yfirtaka innheimtuna og þann 1. febrúar fá allir gíróseðil og/eða kröfu í heimabanka (án aukagjalds) en síðan verður einnig hægt að velja boðgreiðslur (kreditkort) eða beingreiðslur (af bankareikningi). 
Þeir sem vilja nýta boðgreiðslur þurfa að koma kortanúmeri á skrifstofu skólans. Þeir sem velja beingreiðslur (og eru ekki í beingreiðslum núna) hafa samband við sinn banka og láta vita einnig á skrifstofu skólans.

Sjá matseðil / See menu
 

Máltíð dagsins

05.09.2010

Helgarfrí

Sjá matseðil mánaðarins
<<  September 2010  >>
 m  þ  mi  fi  f  la  su 
    1  2  3  4  5
  6  7  8  9101112
13141516171819
2526
27282930   

Næstu atburðir