Fréttir
Heimsókn í VR Prenta Senda tengil
Á hverjum vetri býður Verslunarmannafélag Reykjavíkur nemendum 10. bekkja upp á fræðslu um réttindi og skyldur á vinnumarkaði. Í þeim tilgangi fóru nemendur í valnámskeiðinu Náms- og starfsfræðsla í heimsókn í Hús verslunarinnar þriðjudaginn 6. október. Fjallað var um kjarasamninga, verktakavinnu, vinnutíma, launaseðla, veikindatíma og hvíldartíma svo eitthvað sé nefnt og var fræðslan brotin upp á skemmtilegan hátt með myndbandsbrotum þar sem Jón Gnarr fer á kostum í ýmsum hlutverkum. Var heimsóknin mjög vel heppnuð og spurðu nemendur margra skynsamlegra spurninga sem ágæt svör fengust við. Er ánægjulegt að vita til þess að starfsmannafélag bjóði grunnskólanemum slíka fræðslu.
Takk fyrir okkur!
 
 
Brunaæfing 1. okt Prenta Senda tengil
Í gær var brunaæfing í Ölduselsskóla. Þegar brunabjallan hringdi fóru nemendur í raðir og gengu rösklega saman út. Þar mættust allir nemendur skólans ásamt starfsfólki. Nemendur fóru í raðir eftir árgöngum og gekk það sérlega vel fyrir sig.
 
Þórsmörk Prenta Senda tengil
Miðvikudaginn 23.sept hélt árgangur 8.bekkja inn í Þórsmörk. Nemendur og starfsfólk hlökkuðu til fararinnar. Fyrsta hlé ferðarinnar var á Hvolsvelli en nesti var snætt eftir hressandi göngu bak við Seljalandsfoss. Gott færi var í jökulám leiðarinnar og því var ákveðið að ganga inn Stakkholtsgjá og skoða gjána, nærliggjandi hella og fossa. Eftir að nemendur höfðu komið á leiðarenda og komið sér fyrir í skála Útivistar  var Básahringurinn ásamt Strákagili tekið fyrir og kærkomið grill að göngu lokinni var góður endir á síðdeginu. Um kvöldið var farið í leiki og haldin kvöldvaka sem stóð fram í næturhúmið. 25.sept var dagurinn tekinn snemma hjá flestum og haldið heim á leið eftir vel heppnaða Þórsmerkurferð. Nemendur voru sér og skólanum sínum til sóma.

Kveðja.
Birna Sif, Bryndís, Kristín og Jens Karl


 
Forvarnardagurinn Prenta Senda tengil
Miðvikudaginn 30.september var forvarnardagur. Í Ölduselsskóla unnu nemendur 9.bekkja þemaverkefni sem snéri að þeirra hugmyndum um forvarnir. Dagskráin byrjaði á ávarpi skólastjóra og fylgdu síðan afbragðs fyrirlesarar og umræður þeirra í kjölfarið. Sá fyrirlesari sem veitti hve mesta athygli var fíkniefnaleitarhumdurinn Asi og þjálfari/vinnufélagi hans, tollvörðurinn Stefán Geir. Nemendur voru virkir í umræðunni og spurðu athyglisverða spurninga sem endurspeglar að hluta hugmyndir þeirra er koma að rannsóknum um vímuefnavarnir. Nemendur skiluðu niðurstöðum umræðna sinna á vefsvæði verkefnisins, forvarnardagur.is og hvetjum við alla til að líta á heimasíðu verkefnisins og skima hugmyndir nemenda um forvarnir. Að okkar mati var dagurinn vel heppnaður liður í forvarnarfræðslunni.

Kveðja Jens Karl og Sigmar
 
Hvalaskoðun 6. bekkjar Prenta Senda tengil

 

Hvalaskoðun 6. bekkjar 

Þriðjudaginn 1. september fór 6. bekkur í hvalaskoðunarferð frá Ægisgarði með hvalaskoðunarskipinu  Eldingu.
Tveggja hæða rúta á vegum Eldingar kom og sótti okkur í skólann og það var því strax spennandi  að komast af stað.
Þegar um borð var komið fóru allir í björgunarvesti og skoðuðu sig svo um í bátnum. Haldið var af stað út á Faxaflóann í leit að hvölum. Eftir rúmlega 40 mínútna siglingu fóru hlutirnir að gerast.  Hópur af hnísum var að leika sér í framan við bátinn. Skömmu síðar sáum við hrefnu og áður en ferðinni lauk sáum við 7 hrefnur, en þær voru í ætisleit á þessum slóðum.
Sjórinn var nokkuð úfinn og því urðu nokkrir ansi slappir þegar leið á ferðina en um leið og lagt var af stað í land hresstust flestir og þegar við mættum í kjötbollur hjá Gunnari tóku allir vel til matar síns. Þetta var skemmtileg ferð og allir voru sjálfum sér og skólanum til mikils sóma.

Kennarar 6. bekkja
Petra, Sigríður, Þórunn og Ellen

 
Smádýragreining Prenta Senda tengil
Fyrstu vikuna í september hafa 9.bekkir verið að vinna að smádýragreiningu. Smádýrin hafa nemendur m.a. veitt í kartöflugildrur sem legið hafa úti í jaðri skólans í tvo til þrjá daga. Einnig tókst að fanga geitunga og skoða þá í víðsjá til frekari greiningar. Nemendur vinna að greiningu með aðstoð tækja og greiningarlykla og skila greinargerð. Líf og fjör var við öflun og greiningu, sér í lagi vöktu geitungarnir athygli en þess má geta að tveir nemendur urðu fyrir lítilsháttar stungu.

Jens Karl og Jóhanna
 
 
Teiknisamkeppni - Vísindavaka 2009 Prenta Senda tengil
Vísindavaka 2009 ? teiknisamkeppni fyrir börn

Föstudaginn 25. september 2009 mun Rannsóknamiðstöð Íslands, RANNÍS,
standa fyrir Vísindavöku en hún er haldin samtímis í helstu borgum Evrópu
í tengslum við Dag vísindamannsins. Markmiðið er að færa vísindin nær
almenningi, vekja fólk til umhugsunar um mikilvægi rannsókna- og
vísindastarfs í nútímasamfélagi og kynna vísindi sem möguleika í
starfsvali barna og ungmenna. Verður þetta gert með lifandi kynningum og
boðið upp á skemmtilega og fræðandi viðburði fyrir alla fjölskylduna, með
sérstakri áherslu á fjölskyldufólk. Allar vísindagreinar eru kynntar á
Vísindavöku, hugvísindi jafnt sem raunvísindi, og búist er við allt að
2000 gestum.

Í aðdraganda Vísindavöku verður blásið til teiknisamkeppni fyrir börn og
má þema myndanna vera annað hvort "vísindi í daglegu lífi" eða
"vísindamaðurinn minn". Skilafrestur er til 16. sept. og verða allar
innsendar myndir til sýnis á Vísindavökunni. Keppnin er haldin í tveimur
aldursflokkum og bókaverðlaun veitt á Vísindavöku.

Lesa meira
 
Nemenda- og hvatningaverðlaun Menntaráðs 2009 Prenta Senda tengil

 

Kennarar úr Ölduselsskóla fá hvatningarverðlaun Menntaráðs 2009 ásamt  Fellaskóla og Vogaskóla.

 

Sunnudaginn 14. júní voru nemendaverðlaun og hvatningarverðlaun menntaráðs Reykjavíkur afhent við hátíðlega athöfn í Ingunnarskóla. Kjartan Magnússon, formaður menntaráðs afhenti verðlaunin. Markmið með verðlaununum er að veita nemendum og grunnskólum í Reykjavík jákvæða hvatningu í starfi og vekja athygli á því gróskumikla starfi sem fram fer í grunnskólum Reykjavíkurborgar. Auk þess að stuðla að nýbreytni- og þróunarstarfi í skólunum. Tuttugu og átta verkefni voru tilnefnd og þar af voru átta verkefni valin til viðurkenningar. Ölduselsskóli var einn þriggja skóla sem fékk viðurkenningu og verðlaunagrip  eftir Pjetur Stefánsson fyrir verkefnið Vinnustöðvar í lestri.

 

Síðastliðið sumar fóru nokkrir kennarar skólans til Texas í Bandaríkjunum að kynna sér ákveðið námsfyrirkomulag kennt við Debbie Diller sem stuðlar að einstaklingsmiðuðu námi með vinnustöðvum. Áður höfðu þessir kennarar kynnt sér bók og myndband sem Debbie Diller gaf út.

 

Mynd: Handhafa hvatningarverðlauna menntaráðs Reykjavíkur 2009
Mynd: Handhafa hvatningarverðlauna menntaráðs Reykjavíkur 2009

 

Kennararnir Ásdís Hallgrímsdóttir, Erla Erlendsdóttir, Ásta Margrét Guðmundsdóttir, Kristín Gísladóttir, Eygló Guðmundsdóttir, Guðrún Guðnadóttir, Björg Ásgeirsdóttir, Guðríður Guðnadóttir, Málfríður Jóhannsdóttir og Elín Thorarensen fóru til Texas á námskeið til Debbie Diller.  Eftir heimkomuna fylltust þessir kennarar eldmóði og hafa núna í vetur verið að þróa það sem þær kalla vinnustöðvar í lestri og fengið til liðs við sig fleiri kennara úr kennarahópnum.

 

Við í Ölduselsskóla erum afar stolt af frumkvöðlum okkar og óskum þeim til hamingju.

 

Hvatningarverðlaun menntaráðs Reykjavíkur 2009:

Viðurkenningarskjal ásamt verki eftir Pjetur Stefánsson,  komu í hlut eftirtalinni skóla:

  • Ölduselsskóli - fyrir verkefnið: Vinnustöðvar í lestri
  • Fellaskóli - fyrir verkefnið: Foreldranámskeið fyrir erlenda foreldra
  • Vogaskóli - fyrir verkefnið: Jafnréttisfræðsla í leik- og grunnskólum

Hér sjást verðlaunahafar Ölduselsskóla, Vogaskóla og Fellaskóla.

Sérstök valnefnd, skipuð af fræðsluráði, fjallaði um allar tillögurnar en formaður hennar var Sigríður Ragna Sigurðardóttir. Til hliðsjónar við valið hafði dómnefnd vinnureglur en þar segir m.a.:

Með nýbreytni er átt við nýjung í skólastarfi viðkomandi skóla sem felur í sér umbætur á skólastarfi. Þar segir einnig: Þróunarstarf er skipulagt starf sem leiðir til framfara í skólastarfi. Dómnefnd skal leitast við að veita viðurkenningu fjölbreyttum verkefnum hvert sinn.  
 

 

Ísak Bjarnason nemandi í 10. bekk fékk Nemendaverðlaun Menntaráðs

 

Mynd: Handhafar nemendaverðlauna menntráðs Reykjavíkur 2009
Mynd: Handhafar nemendaverðlauna menntráðs Reykjavíkur 2009

Nemendaverðlaun menntaráðs eru nú afhent í sjöunda sinn, en síðan vorið 2003 hafa árlega verið veittar viðurkenningar og verðlaun til nemenda í grunnskólum borgarinnar sem skara fram úr í námi og starfi. Tilhögun þessara verðlauna er þannig að skóli tilnefnir nemanda eða nemendur til nemendaverðlauna og sendir upplýsingar til valnefndar. Alls bárust að þessu sinni 36 tilnefningar frá 33 grunnskólum í Reykjavík um nemendur sem skara fram úr í námi, í félagsfærni, virkni í félagsstarfi eða hafa sýnt frábæra frammistöðu á tilteknu sviði skólastarfs.

Nemendur sem tilnefndir voru fengu bókargjöf og viðurkenningarskjal. Verðlaunahafar spanna nánast alla aldurshópa grunnskólans.

Ölduselsskóli tilnefndi Ísak Bjarnason nemanda í 10. bekk fyrir frábæra virkni í félagstarfi og óeigingjarnt starf í þágu skólans.

Rökstuðningur fyrir tilnefningu hans var:

Ísak á heiðurinn af því að árshátíðarleikrit skólans varð eins og atvinnumannasýning með tölvuvæddum ljósabúnaði og hljóðkerfi auk reykvéla.  Ekkert verkefni virtist honum óyfirstíganlegt. Ekki einungis lagði hann af mörkum ótrúlegt vinnuframlag heldur aflaði hann styrkja sem voru bæði beint peningaframlag frá fyrirtækjum auk þess að fá með sér fólk til aðstoðar sem kunni vel til verka. Með þessu þrekvirki gerði hann skólanum kleift gera sýninguna á söngleiknum Hárinu að ógleymanlegu verki í sögu skólans.

Hér sjást þeir nemendur sem fengu nemendaverðlaun Menntaráðs. Ísak er í efstu röð númer tvö frá hægri.

Innilega til hamingju Ísak.

 
Stærðfræði verkefni 8. bekkjar niður við Elliðaár. Prenta Senda tengil
Föstudaginn 8.maí unnu 8.stæ-strákar vatnamælingaverkefni niður við Elliðaár. Unnið var á fjórum stöðvum þar sem eftirfarandi var mælt: breidd milli bakka, meðaldýpt, rennslishraði flots milli stika, hitastig. Strákarnir drógu saman allar tölfræðilegar upplýsingar og unnu úr þeim þegar heim var komið. Niðurstöðurnar leiddu í ljós, að við syðri-kvísl Elliðaár föstudaginn 8.maí runnu að meðaltali 2.8 rúmmetrar af ferskvatni á hverri sekúndu. Stefnt er að samanburðarathugun að hausti.

Jens Karl Ísfjörð

 
Stærðfræðidagur í 1 - 7. bekk Prenta Senda tengil


Þriðjudaginn 12. maí verður stærðfræðidagur í 1.-7. bekk. Nemendum verður blandað á milli árganga þar sem 1. og 4. bekkur vinnur saman, 2. og 3. bekkur vinnur saman og 5.-7. bekkur vinnur saman. Nemendur munu vinna á stöðvum og leysa þar ýmsar stærðfræðiþrautir. Markmiðið er að nemendur læri að takast á við margvísleg verkefni og þrautir og finna lausnir á þeim ásamt því að öðlast jákvætt viðhorf til stærðfræðinnar kynnast skemmtanagildi hennar.

Klara Eiríka
 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 2